Samkvæmt útreikningum Veganuary tóku um það bil 30 milljónir manna þátt í Veganúar – sem er 4 milljónum fleiri en í fyrra.
Þrátt fyrir háværa umræðu um hnignun veganisma tala tölurnar öðru máli. Vissulega virðist áhuginn hafa dvínað í sumum löndum, en alls ekki í þeim öllum – og það er mikið gleðiefni.
Í Bretlandi eru matvörukeðjur enn að auka úrval sitt og fjölmargir veitingastaðir tóku þátt, allt frá stórum keðjum til minni staða. Það sem okkur í SGÍ þykir sérstaklega spennandi er að vinnustaðir eru einnig hvattir til þátttöku , og nokkrir gripu það tækifæri. Sérstaklega ber að nefna sjúkrahús á borð við King’s College Hospital, einn virtasta spítala Bretlands. London hefur áður verið kosið veganvænasta borg í heimi, en margar borgir í Bretlandi keppa árlega um þann titil.
Þetta er titill sem okkur þætti gaman að sjá hérna en fyrir ekki svo löngu síðan var Ísland mjög framarlega í þessum málum. Þrátt fyrir að við finnum óneitanlega fyrir dvínandi áhuga margra fyrirtækja og veitingastaða hérlendis teljum við ástæðuna ekki vera þá að færri séu vegan en áður.
Þvert á móti teljum við veganisma vera orðinn rótgróinn – þó enn lítill – hluti samfélagsins, þar sem framboð og eftirspurn hafa jafnast út. Þannig eru veitingastaðir ekki lengur allir að „kasta út netinu og sjá hvað þeir veiða“ (afsakið orðatiltækið) og almenningur ekki jafn „vegan-curious“ og fyrir tæpum tíu árum.
Hins vegar er það staðreynd að svokölluð tískumataræði detta inn og út. Veganismi er ekki tískubylgja, en plöntumiðað mataræði gæti fallið þar undir. Undanfarin ár hafa mataræði sem leggja mikla áherslu á dýraafurðir verið í tísku, mögulega sem mótsvar við plöntumiðað mataræði sem var einmitt mjög „heitt“ fyrir nokkru síðan.
Ólíkt öðrum tískubylgjum eru heilbrigðisstofnanir þó sífellt að mæla gegn mikilli neyslu dýraafurða og með aukinni neyslu matvæla úr plönturíkinu. Þannig að þrátt fyrir háværa „dýraafurða-áhrifavalda“ er matur unninn úr plöntum enn áhrifaríkasta leiðin til góðrar heilsu.
Með aukinni meðvitund um vitsmuni og meðferð dýra, samhliða skýrum meðmælum heilbrigðisstofnana, teljum við því engar líkur á að veganismi sé raunverulega á undanhaldi og ef eitthvað er má ætla að pendúllinn sveiflist aftur í þá átt á komandi árum. Það er ekki erfitt að draga þá ályktun í ljósi nýjustu talna Veganuary!
Til hamingju með Veganúar að þessu sinni – og við hlökkum til að hitta ykkur á næstu vegan viðburðum ársins!
-Stjórn SGÍ 2026 🌱