Return to site

Vegan Festival 30. ágúst 2026

Ekki missa af!

· Vegan Festival

Samtök grænkera á Íslandi tilkynna með gleði og ánægju að enn á ný verður Vegan hátíðin haldin með pompi og prakt! Þetta er í 10unda sinn sem hátíðin er haldin og hafa öll fyrri skipti farið fram úr okkar björtustu vonum.

Síðustu ár hefur gestafjöldi verið í kringum 1000 manns samkvæmt óformlegu tali Hafnarfjarðarbæjar. Yfirleitt hefur nánast allur matur selst upp og framleiða fyrirtæki þó talsvert umfram það sem þau áætla að þau selji. Við hvetjum fólk því til að mæta tímanlega.

🌟 Gleðin mun hefjast kl 12:00 á sólríkum sunnudegi (við höfum sent inn sterklega orðaða veðurbeiðni) og standa yfir til 16:00, jafnvel 17:00 ef vel viðrar til!

🍕 Fjölbreytt matarflóra verður til sölu: ís, kólumbískur matur, transylvanískar kökur, ungverskar flatbökur, tælenskir réttir, bakkelsi og kökur og kaffidrykkir. Ekki er bara matur heldur einnig aðrar vegan vörur svo nóg er að skoða og kynna sér.

🏰 Fyrir yngri samfélagsþegna eru svo hoppukastalar, skynjunarupplifun og andlitsmálning.

🎶 Ragga Gröndal mun syngja enda er það orðin hálfgerð hefð að fá hennar satínmjúku rödd til að ylja gestum um hjartarætur. Síðar munu Gunnar Hilmarsson og Jóhann Guðmundsson skapa notalega stemningu með dúnmjúkum og djözzuðum tónum.

Við hlökkum til samverunnar og vonumst til að sjá sem allra flest. Verið velkomin, deilið sem víðast og dragið með ykkur öll sem hafa gaman af lífinu! 🌱