Return to site

Niðurstaða aðalfundar

Mynd kemur síðar 📸

· Aðalfundur

Aðalfundur var haldinn 19. ágúst síðastliðinn á Hallveigarstöðum. Fundurinn var haldinn beint eftir fund Hvalavina og leigðu samtökin tvö því salinn saman til þess að minnka kostnað þar sem margt félagsfólk tilheyrir báðum samtökum.

Samtök Grænkera á Íslandi buðu upp á veglegar kræsingar frá Loving Vegan ásamt smá sætindum. Mæting var heldur dræm en þar af leiðandi fóru flest vel södd heim!

Þrátt fyrir fámenni var góð orka í salnum og fundarhöld gengu afar vel. Farið var yfir starf samtakanna frá síðasta fundi en þetta árið var aðalfundur haldinn fyrr á árinu, því voru ekki nema um það bil 10 mánuðir liðnir frá þeim seinasta. Þetta var gert til að auðvelda nýrri stjórn að aðlagast en aðalfundur hefur oft verið haldinn heldur nálægt undirbúningi Veganúar, sem er þungaviktar verkefni. Mikil ábyrgð hefur því fallið á reyndari stjórnarmeðlimi sem veldur talsverðu álagi á fáar herðar.
Með þessari breytingu vonumst við til að stjórnin nái að pússa sig vel saman áður en af stað er haldið í Veganúar! Má gera ráð fyrir að á næsta ári verði fundur haldinn enn fyrr þar sem tilvaldið er að nýta sumarfríið í að kynnast starfinu betur.

Ný stjórn

Kosið var til stjórnar en jafn mörg sæti voru laus og frambjóðendur. Öll framboð voru því samþykkt af fundargestum. Kosinn var nýr formaður samtakanna en Aldís Amah Hamilton hefur gengt því hlutverki í tvö ár af þremur sem meðlimur í stjórn SGÍ. Einn glænýr meðlimur var tekinn inn og annar fyrrum stjórnarmeðlimur kom til baka. Það er því mjög örugg stjórn sem tekur við næsta tímabili!

Stjórnin 2026-2027:

🍀 Kristín Helga Sigurðardóttir tekur við sem formaður Samtaka Grænkera á Íslandi en Aldís Amah Hamilton kveður stjórnina að sinni. Kristín hefur lengi verið viðloðandi samtökin áður en hún gekk í stjórn fyrir tveimur árum svo hún er vel kunn staðarháttum og verður án alls efa frábær við stjórnvölin.

🍀 Sigrún Elfa Kristindóttir var endurkosin gjaldkeri samtakanna en Sigrún er faglærður bókari svo hennar framlag er samtökunum afar dýrmætt. Þannig sér hún um allt bókhald af mikilli eljusemi og fagmennsku, sem og skipulag viðburða.

🍀 Lowana Veal var kosin í stjórn til tveggja ára á ný en hún hefur verið meðlimur frá stofnun samtakanna. Hennar innsýn í sögu SGÍ er því ómetanleg og framlag hennar þess vitnis.

🍀 Hólmsteinn er glænýr meðlimur og mikil baráttumanneskja fyrir dýravelferð. Er það mikið gleðiefni að fá hann í teymið.

🍀 Axel er grafískur hönnuður og hefur áður setið í stjórn SGÍ. Hann tekur við Kristínu sem varaformaður. Á milli tímabili hefur hann hjálpað stjórninni talsvert með auglýsingar fyrir viðburði og alltaf verið mikill stuðningur svo það er ekki hægt að segja að hann hafi nokkurn tímann yfirgefið stjórnarsætið alveg!

🍀 Davíð Sól Gleymérei og Andrea Rói Sigurbjörns hefja annað árið sitt sem stjórnarmeðlimir og verður gaman að sjá þau halda áfram að vaxa og dafna í starfinu.

Ásamt Aldísi kveður Anna Hulda Ólafsdóttir samtökin að sinni en, líkt og með flesta fyrrum meðlimi, eru yfirgnæfandi líkur á því að þær muni halda áfram að styðja starfið á einn eða annan hátt. Líkt og allt það góða fólk sem samtökin leita reglulega til yfir árið.

Við þökkum félagsmeðlimum fyrir mætingu og fráfarandi stjórnarmeðlimum fyrir þeirra ötula starf.

Við minnum á að hvatningarverðlaunin verða tilkynnt og afhent 1. nóvember á World Vegan Day. Tillögur um íslenska þýðingu eru velkomnar í pósti á [email protected].

Ársreikning er að finna hér og lög samtakanna hér.