Return to site

Málþing um velferðarþvott í veganúar 2026

Upptaka aðgengileg

January 25, 2026

Þriðjudaginn 21. janúar 2026 fór fram vel sótt og málefnalegt málþing í Norræna húsinu á vegum Veganúar, þar sem kastljósinu var beint að velferðarþvotti (e. welfare washing) í samhengi við þauleldi og matvælaframleiðslu. Nú er upptaka frá viðburðinum aðgengileg fyrir öll sem vilja kynna sér umræðuna eða rifja hana upp.

Hvað er velferðarþvottur?

Hugtakið velferðarþvottur var notað í fyrsta sinn af Matthew Glover, öðrum stofnanda Veganuary, í kjölfar máls í Bretlandi þar sem í ljós kom að vottun RSPCA – stærstu dýravelferðarsamtaka landsins – hafði í mörgum tilfellum litlar sem engar stoðir þegar kom að velferð dýra í þauleldi.
Velferðarþvottur felst í því að fyrirtæki setja fram fullyrðingar um bættan aðbúnað dýra til að skapa ímynd siðferðislegrar ábyrgðar, á meðan raunverulegur aðbúnaður og þjáning dýranna er falin eða gerð lítilvæg.

Umræðan á málþinginu

Á málþinginu fræddu vel valdir sérfræðingar og gestir um:

  • hvað telst raunveruleg dýravelferð í þauleldi,
  • hvernig velferðarþvottur birtist í markaðssetningu og vottunum,
  • og hversu raunhæft er að byggja íslenska matvælaframleiðslu á slíkum forsendum.

En þær Rósa Líf Darradóttir, formaður SDÍ, hélt fyrirlestur um dýravelferð í þauleldi og Þóra Jónasardóttir, yfirdýralæknir MAST, hélt einnig fyrirlestur og svöruðu þær baðar spurningum úr sal.

Að auki tóku fulltrúar allra stjórnmálaflokka, að utanskildum miðflokknum, þátt í pallborði og kynntu stefnu flokka sinna í þessum málum, sem skapaði mikilvægt samtal um ábyrgð, gagnsæi og framtíðarsýn.

Notaleg umgjörð og góðar umræður

Gestir gátu gripið sér léttan vegan mat á Plöntunni fyrir málþingið en boðið var upp á léttar veitingar og heita drykki á meðan á því stóð. Stemningin var opin og uppbyggileg, með virkri þátttöku úr sal og fjölbreyttum sjónarmiðum.

Upptakan aðgengileg

Við hvetjum öll sem hafa áhuga á dýravelferð, neytendavernd, matvælakerfum og siðferði í framleiðslu til að horfa á upptökuna (sem er í tveimur hlutum) og taka þátt í áframhaldandi umræðu.
👉 Upptökurnar má finna hér:

Fyrir Hlé:

Eftir Hlé: