Þriðjudaginn 21. janúar 2026 fór fram vel sótt og málefnalegt málþing í Norræna húsinu á vegum Veganúar, þar sem kastljósinu var beint að velferðarþvotti (e. welfare washing) í samhengi við þauleldi og matvælaframleiðslu. Nú er upptaka frá viðburðinum aðgengileg fyrir öll sem vilja kynna sér umræðuna eða rifja hana upp.
Hvað er velferðarþvottur?
Hugtakið velferðarþvottur var notað í fyrsta sinn af Matthew Glover, öðrum stofnanda Veganuary, í kjölfar máls í Bretlandi þar sem í ljós kom að vottun RSPCA – stærstu dýravelferðarsamtaka landsins – hafði í mörgum tilfellum litlar sem engar stoðir þegar kom að velferð dýra í þauleldi.
Velferðarþvottur felst í því að fyrirtæki setja fram fullyrðingar um bættan aðbúnað dýra til að skapa ímynd siðferðislegrar ábyrgðar, á meðan raunverulegur aðbúnaður og þjáning dýranna er falin eða gerð lítilvæg.
Umræðan á málþinginu
Á málþinginu fræddu vel valdir sérfræðingar og gestir um:
- hvað telst raunveruleg dýravelferð í þauleldi,
- hvernig velferðarþvottur birtist í markaðssetningu og vottunum,
- og hversu raunhæft er að byggja íslenska matvælaframleiðslu á slíkum forsendum.
En þær Rósa Líf Darradóttir, formaður SDÍ, hélt fyrirlestur um dýravelferð í þauleldi og Þóra Jónasardóttir, yfirdýralæknir MAST, hélt einnig fyrirlestur og svöruðu þær baðar spurningum úr sal.
Að auki tóku fulltrúar allra stjórnmálaflokka, að utanskildum miðflokknum, þátt í pallborði og kynntu stefnu flokka sinna í þessum málum, sem skapaði mikilvægt samtal um ábyrgð, gagnsæi og framtíðarsýn.
Notaleg umgjörð og góðar umræður
Gestir gátu gripið sér léttan vegan mat á Plöntunni fyrir málþingið en boðið var upp á léttar veitingar og heita drykki á meðan á því stóð. Stemningin var opin og uppbyggileg, með virkri þátttöku úr sal og fjölbreyttum sjónarmiðum.
Upptakan aðgengileg
Við hvetjum öll sem hafa áhuga á dýravelferð, neytendavernd, matvælakerfum og siðferði í framleiðslu til að horfa á upptökuna (sem er í tveimur hlutum) og taka þátt í áframhaldandi umræðu.
👉 Upptökurnar má finna hér:
Fyrir Hlé:
Eftir Hlé: